Hjörtur "hvítliði"

Hjörtur J. Guðmundsson (no comment) bendir á að nú þurfi e.t.v. að stofna borgaralegt varalið eins og gert var 1949!

Hverjir voru það nú aftur sem stofnuðu það??????     Er ekki einhver Benni Ólsari þekktur fyrir að vera vel handfastur - er hann ekki efnilegur í liðið með Hirti?       Tillaga að nafni á sveitinni:

                                                 HVÍTLIÐAR

Markmið:  Að berja Vinstri Græna almennt (og Ástþór ef hann kemur í höggfæri) og Hörð og Gunnar ef þeir sjást! LoL

Ps. Ætli Geir geti verið "liðsstjóri" - eða Hannes Hólmsteinn - hann vantar embætti við hæfi!Halo

Slæmt að komast ekki suður áður en byltingin er búin!     Bíllinn minn er enn í viðgerð! Devil

Kveðja,

Ragnar

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Margur maðurinn sem einhver döngun væri í léti ekki bílgarm hindra sig í að berja á fólki og jafnvel vel það. Nú er bara að girða sig í brók Ragnar minn og stela sér skeifugörmum undir tvo klára og drífa sig suður. Ég skal hella uppá eitthvert kaffiskólp handa þér og henda í þig kleinuræfli áður en þú ferð að taka til hendinni.

Árni Gunnarsson, 23.1.2009 kl. 16:51

2 Smámynd: Ragnar Eiríksson

Ég á nú nóg af skeifum en hef ekki tekið hross inn enn út af stjórnmálaástandinu og hef nú ekki efni á að leigja húspláss þarna í R.vík.      Þetta er rétt hjá þér enda fékk ég skoðun á bílinn í gær svo ég fer að verða klár.  Ætla þó að bíða fram yfir helgi - ég mótmæli ekki fyrir tómu húsi, það er ljóst og svo eru nú enn líkur á að stjórnin fari frá.   En sem sagt, ég fer að tygja mig af stað ef ekkert breytist og þá getur kaffið og kleinan orðið vel þegin.   Annars er Reykjavík alltaf hryllingur í mínum huga!

Kveðja

Ragnar

Ragnar Eiríksson, 23.1.2009 kl. 19:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband