9.12.2008 | 19:56
Sala Kaupþing banka Luxembourg
Það kom frétt frá RUV um að Skilanefnd Gamla Kaupþings banka segðist ekki eiga neitt í bankanum í Luxembourg og hefði engan aðgang að honum. I hvers umboði var maðurinn sem kom í sjónvarpið (RUV) í gær með eina evru og sagði að bankinn sjálfur kostaði nú ekki mikið, bara eina Evru, en svo væru einhverjar kvaðir og skuldir?
Hvaða maður var þetta, bankastjórinn eða umboðsmaður ríkisstjórnarinnar hér eða jafnvel umboðsmaður ríkisstjórnar Luxembourg? Þetta er nú víst gæðaríkisstjórn þarna og mjög vinsamleg - Geir sagði á Alþingi að langbest væri að selja fyrst bankann því okkur vantaði peninga en svo væri enginn vandi að semja um að fá að kíkja í bókhaldið seinna. Snilldar samningamaður Geir - við þekkjum það frá ICESAVE!!!
Sjá frétt DV 9/12 2008: Kaupþingssala spillir rannsókn.)
PS. Ég kann ekki að skrifin tengja við fréttina!!!!!
Ragnar
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:13 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.