ALÞINGI - VANHELGAÐ HÚS

Á Alþingi starfa 63 þingmenn sem skipta á í stuðningsmenn ríkisstjórnar og stjórnarandstöðu. Innan stuðningsliðs ríkisstjórnar er alla ríkisstjórnina að finna.     Ég vil hins vegar skipta þeim öðruvísi:

  •  Þjóðníðingar og landráðamenn: meðlimir ríkisstjórnar og nánustu samstarfmenn þeirra s.s. seðlabankastjóri, forstjóri FME, o.fl. sem horft hafa upp á landið hrynja, fjárhagslega og í mannorði og með aðgerðum sínum og aðgerðarleysi hafa látið hina seku sleppa og jafnvel hjálpað þeim.
  • Landráðamenn:  Almennir þingmenn ríkisstjórnar sem hafa varið hana falli þrátt fyrir augljósan vilja þjóðarinnar til að hún fari frá völdum ásamt öllu sínu spillingarliði.
  • Svika- eða þjófsnautar:  Stjórnarandstöðuþingmenn sem með setu sinni á Alþingi hafa gerst meðsekir í spillingunni, lygunum, yfirhilmingunni, vanhæfninni og aðgerðarleysinu.    

  Allir þessir menn ættu að yfirgefa Alþingi með skömm því þeir eru búnir að vanhelga það og þjóðina, margbrjóta stjórnarskrána með því að samþykkja lög sem brjóta í bága við hana og með því að umlíða lygar, svik og spillingu sem út yfir allan þjófabálk gengur.

Að þingmenn stjórnarandstöðu skuli ekki fyrir löngu hafa sagt af sér sýnir svo ekki verður um villst að þeir eru samsekir og hefja sig ekki upp úr því spillingardýki sem einkennir þingliðið núna - eða réttar sagt hefur nú verið opinberað. 

Ragnar    

 


Nú er sláturtíðin löngu komin!

Nú eru liðnar um 9 vikur frá hruninu og lítið sem ekkert hefur gerst sem til bjargar má telja.    Því síður hefur verið leitað að gerningsmönnum, sökudólgum, glæpamönnum eða hvað nú á að kalla þá sem þessum ósköpum hafa valdið.Þessu öllu má líkja við að þjóðin hafi verið hrakin og barin, hædd og svívirt af hópi fólks.   Þar má telja:

  • Útrásartröllin sem í mörg ár hafa spilað sig stór í okkar augum og logið og svikið og platað með fölskum fréttum af velgengninni, sem við, saklaus almenningur trúði eins og nýju neti.
  • Ríkisstjórn sem með aðgerðum sínum og aðgerðarleysi hefur verið drifkraftur svikanna.     Hún vissi - en gerði ekkert.    Hún vissi - en laug að hún vissi ekkert.  Hún lofaði aðgerðum en gerði ekkert!  Hún gerði - en það var allt til tjóns!
  • Alþingismenn sem áttu að setja alls kyns regluverk okkur til varnar en gerðu ekki og voru meira og minna meðvirkir með ríkisstjórninni og útrásarliðinu.
  • Opinberir starfsmenn sem margir hverjir hafa sýnt sig að hafa gert ýmis afgöp í starfi og jafnvel lögbrot.
  • Bankastarfsmenn sem fyrir peninga hafa svikið og logið í flestum eða öllum aðgerðum í sambandi við fyrirtækjastofnanair, rekstur og fjárflutninga í og úr sjóðum bankanna til fyrirtækja og jafnvel til að bjarga fjármunum vina og kunningja út úr hruninu - og þá á kostnað annara.

Ég trúði því í byrjun að strax mundi byrjað að leita hinna seku til að sættast við þjóðina sem að vísu var í losti.     Þá hélt ég að fáir svartir sauðir væru í hjörðinni sem mundu verða leiddir fram og skornir!     Það er augljóslega alrangt  -  ALLIR SAUÐIRNIR VORU SVARTIR !!!!   Þess vegna lítur nú út fyrir að ef einhverjir verða skornir þá séu það þeir hvítu.    Núna virðist sem staðan sé sú að beðið er eftir að atburðirnir fyrnist nokkuð og jafnframt er verið að koma eignum úr hinum gömlu bönkum sem ekki enn eru gjaldþrota í hendur æskilegra manna.       Þar má nefna sögur um að Kaupþing Lux hafi í gær verið selt Sigurði Einarssyni og Kaupþing Noregi hafi fallið í hendur Bjarna Ármannssyni!     Margt annað mætti nefna t.d. væntanlega sölu á Morgunblaðinu en spillingarfnykurinn er nokkuð sterkur í loftinu.     Reykjavík hlýtur að vera svipuðu "ilmstigi" og Siglufjörður og Raufarhöfn voru þegar sem mest var brætt þar af síld!!

Þingmenn eiga skilið sinn skammt af skömmum.     Það getur enginn þeirra firrt sig ábyrgð, hvorki á því sem gerðist fyrir hrunið né heldur því sem farið hefur fram eftir hrunið.     Það er að vísu staðreynd að valdaleysi sjálfstæðrar hugsunar meðal þingmanna er nánast algert, öll þingmál einstakra þingmanna og stjórnarandstöðu eru dæmd til dauða nema til komi stuðningur ríkisstjórnar.   Eftir hrunið kom í ljós að ríkisstjórnin hlustaði ekki á þjóðina, vildi ekki hætta, vildi ekki láta kjósa, vildi fá að vinna við að slökkva þá elda sem hún sjálf kveikti!   Þjóðin hefur verið barin til hlýðni, húðstrýkt þannig að hópar fólks eru að flýja land meðan aðrir eru enn bundnir á klafann og margir eiga einskis úrkosta annars en láta allt yfir sig ganga.    Á ÞETTA HORFA ÞINGMENN AÐGERÐARLAUSIR - ALLIR ÞINGMENN, LÍKA ÞEIR Í STJÓRNARANDSTÖÐUNNI SEM SEGJA "Við berum enga ábyrgð!"    

Auðvitað bera þeir ábyrgð á ríkisstjórninni og gerðum hennar, þeir sitja hjá við afgreiðslur á Alþingi - "til að trufla ekki björgunarstarfið, þeir "hafa hægt um sig" til að rugga ekki bátnum (þá gæti eitthvað af höggunum á þjóðina orðið vindhögg!), þeir sitja í nefndum eins og fjárlaganefnd en frá þeirri nefnd getur vart nokkuð vitrænt komið, hvað þá satt eins og nú er ástatt.     ÞINGMENN STJÓRNARANDSTÖÐU ERU ÞVÍ ALGERLEGA MEÐVIRKIR OG MEÐSEKIR um að halda ríkisstjórninni við völd og halda áfram misþyrmingu þjóðarinnar, þjófnaði og svindli.  MEÐ ÞVÍ AÐ SEGJA AF SÉR STÖRFUM SEM ÞINGMENN GÆTU ÞEIR NEYTT RÍKISSTJÓRNINA TIL AÐ SEGJA AF SÉR OG BOÐA TIL KOSNINGA.      

 

Þá er ótalinn sá eini sem við höfum kosið sjálf yfir okkur, sjálfur FORSETINN.     Hann virðist nokkuð samdauna þessu spillingarliði, búinn að mæra það í mörg ár og hefur baðað sig í því sviðsljósi og ferðast um heiminn til að segja frá ágæti hinna miklu fjármálafursta.      Hann stendur nú aðgerðarlaus á hliðarlínunni þegar þjóðinni HANS er misþyrmt á hinn grófasta veg af mönnum sem jafna má til landráðamanna.   Hann bauð fram að laun sín yrðu lækkuð vitandi það að ekki má hrófla við launum forseta.  Ég hef ekki heyrt af að hann hafi framselt hluta launa sinna til góðgerðarmála eins og honum er örugglega heimilt.     Að vísu er hann þarna í góðum hópi með formönnum verkalýðsfélaga sem ekki vilja lækka ofurhá laun sín og segja það senda röng skilaboð til atvinnurekenda.    Ja hérna, skinhelgin á engin takmörk!   

EN FORSETINN HEFUR VALDIÐ - HANN EINN GETUR ROFIÐ ÞING ÁN ATBEINA FORSÆTISRÁÐHERRA OG BOÐAÐ TIL ALÞINGISKOSTNINGA SEM ÞÁ SKULU FARA FRAM INNAN 45 DAGA (Stjórnarskrá - 24 grein).

Það gerir hann örugglega ekki - því hann, eins og allt hitt spillingarliðið vonar að öldurnar lægi, að fólk gleymi, að það takist að sjúga upp síðustu blóðdropana svo ekkert misjafnt verði sannað á einn eða neinn.    Það eru allir saklausir uns sekt hefur verið sönnuð - og meðan ekki er leitað finnst ekkert saknæmt!  (Og ef eitthvað er verið að leita þá eru það hinir seku sem fyrir leitinni standa!)

Hvað skal gera?     Ég veit það ekki en mér finnst það fari að verða stutt í að að tala um BYLTINGU af einhverju tagi!      

 


Ungdómurinn í dag!

Úr Velvakanda Mbl. í dag 3/12 2008

"Jónas er frábær!

Ég er 88 ára gömul kona sem hef unun af að hlusta á þættina hans Jónasar í útvarpinu á föstudagskvöldum.   Það er ósk mín til ráðamanna útvarps að þeir hafi þættina áfram á dagskrá.   Ég veit ég tala fyrir fjölda manns á mínum aldri þegar ég segi að okkar afþreying sé að hlusta á útvarp á föstudagskvöldum, en ekki að fara út á lífið! "

Þar höfum við það - frekar að hlusta á Jónas en fara út á lífið - en það er þó valkostur sem Páll getur bent á ef hann segir Jónasi upp!!!!!!    Ég er 25 árum yngri en hefði ekki boðið honum upp á þennan valkost!

 Ragnar 


Síðasta hálmstráið!

Nú standa yfir dauðateygjur fullveldismótmælanna, það mættu fáir og sjáanlegur árangur verður sennilega aðeins einhverjar málningarslettur og höggstaður fyrir andstæðinga mótmæla almennt.    Sennilega er allt satt sem Jónas Kristjánsson segir um úrkynjun og meðvirkni og aumingjaskap íslensku þjóðarinnar!

Ég held persónulega að það sé einungis eitt ráð eftir til að hafa áhrif á ríkisstjórnina -kanske!     Þetta eina ráð er vissulega ekki merkilegt og ekki heldur líklegt að fáist framkvæmt!

 Ráðið er að BIÐJA þingmenn Alþingis að segja af sér og tryggja jafnframt að engir varamenn komi inn í stað þeirra sem hætta.  Um þetta þurfa allir sem eru á móti ríkisstjórninni að sameinast og tala við þá þingmenn sem þeir þekkja.

     Miðað við þær lýsingar sem við höfum fengið undanfarið af spillingu, vinatengslum og klíkusamböndum innan stjórnarráðsins, Alþingis, ríkisstjórnar og flokka er ekki mikil von um að maður verði bænheyrður.     Hins vegar er hægt að höfða til samvisku, heiðarleika, heilbrigðrar skynsemi og til þingskaparlaga um  hvar ábyrgð þingmanna liggur.    Það er vafasamt að þetta höfði sterkt til stjórnarþingmanna sem vita að valdatíma þeirra flestra líkur þar með.     Stjórnarandstæðingar í röðum þingmanna geta hins vegar enn borið höfuðið tiltölulega hátt þó sverðið hangi vafalaust yfir höfðum einhverra líka þegar að kosningum kemur.      Það er alla vega öruggt að með því að segja af sér, segja sig frá allri ábyrgð á gerðum ríkisstjórnarinnar, þá hreinsa þingmenn mannorð sitt talsvert gagnvart þjóðinni með afsögn en ég held að talsvert kusk sé á hvítflibbunum núna, enda er stjórnarandstaðan jöfn stjórnarliðum  að halda ríkisstjórninni við völd!

Hvað getur Alþingi og ríkisstjórn starfað með fáum þingmönnum.      Ef 20 þingmenn stjórnarandstöðunnar hverfa af þingi og engir koma í staðinn stendur eftir ríkisstjórn með 43 þingsæti.     Er henni sætt?      Hvernig líta önnur ríki á slíka stjórnarhætti?    Mér finnst að svo sé ekki og það mundi öðrum þjóðum þykja aðfinnsluverðir stjórnarhættir.

 

Ragnar Eiríksson     


Þjóðníðingur

Geir H. Haarde,

Með yfirlýsingu þinni um að þú berir enga ábyrgð á því fjárhagslega hruni sem hér hefur orðið og þurfir ekki að biðjast afsökunar á einu eða neinu þá lýsi ég þig þjóníðing sem ættir að taka refsingu sem slíkur.      Þú ert nú forsætisráðherra og sem slíkur berð þú ábyrgð á öllum gerðum ríkisstjórnar þinnar.  Þú hefur margsinnis logið að þjóðinni, þú berð algerlega ábyrgð á orðum og gerðum Davíðs Oddssonar, seðlabankastjóra.     Þrátt fyrir að hafa vitað af vandræðum bankanna alla vega frá í febrúar 2008 þá var ekkert gert til að stemma stigu við útþenslu þeirra.     Þú bentir jafnvel á það í sumar að lang farsælast væri að gera alls ekki neitt.     Þú hefur, með dyggri hjálp meðráðherra þinna, klúðrað samningum um ICESAVE bankareikningana svo mikið að sennilega þarf þjóðin að borga margfalt það sem eðlilegt má teljast.     Svona mætti áfram telja mistök og vanhæfni þína í starfi.      Þú varst áður fjármálaráðherra á sennilega mesta góðærisskeiði Íslandssögunnar og stærðir þig þá af því að hafa borgað niður skuldir ríkissjóðs.     Það fór hins vegar minna fyrir því að safnað væri fé í sjóði eins og gjaldeyrisvarasjóð sem hefði e.t.v. hjálpað eitthvað í fjármálaöldurótinu.     Hins vegar var ríkisbáknið þanið út svo nam tugum prósenta á valdaferli þínum.     

Þegar allt er talið hefur þú í engu sýnt að þú værir hæfur til að stjórna ríkinu, enda enda er það nú sennilega "tæknilega" gjaldþrota eins og nú tíðkast að segja og þjóðin hefur misst mannorð sitt og sjálfsvirðingu bæði gagnvart sjálfri sér og öðrum þjóðum.    Þú stóðst fyrir að kveikja þá elda sem nú loga og þrátt fyrir augljósa sekt og vanhæfni þína þá ætlastu til að þú fáir áfram að stjórna því björgunar- og slökkvistarfi sem á að reyna en illa gengur að hefja og þú vísar allri ábyrgð frá þér (sjá frétt á www.ruv.is 30.nov, 2008).

ÉG SEGI NEI.  BURT MEÐ ÞIG GEIR.     MEÐ ÞVÍ AÐ BIÐJAST AFSÖKUNAR OG LÁTA AF STÖRFUM STRAX GETURÐU EF TIL VILL MILDAÐ DÓMINN EN AÐ ÖÐRUM KOSTI ERTU Í MÍNUM AUGUM  þjóðníðingur.

Ragnar Eiríksson


Meira blóð í kúnni!

Þann 22. nov.2008 var skrifuð grein á Silfur Egils (http://blogg.gattin.is/blog.php?view=page&id=s3a5xmf2nk) undir yfirskriftinni
"HA?" með tilvísun í frétt af morgnblaðsvefnum (
http://mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2008/11/22/thjodverjar_lana_islandi/).
Ég hváði líka því mér fannst það hafa komið fram að þessir "Kaupþing Edge"
reikningar væru á ábyrgð þjóðverja sjálfra.        Nú eru liðnar réttar 8
vikur frá því að Glitnir var hertekinn, keyptur, ekki keyptur og svo féll
hann!     Fátt hefur verið sagt og það sem þó var sagt hefur oftar en ekki
reynst vera ósatt en segja má að í hverri viku hafi eitthvert áfall dunið
yfir.    Þessi áföll voru í fyrstu ansi stórkarlaleg - Landsbankinn fallinn,
Kaupþing fallið, risaskuldir erlendis í ICESAVE, o.s.frv.      Þá koma loks
smá góðar fréttir,   Davíð segir að við munum koma keik frá þessu því amma
sín hafi sagt að það ætti ekki að borga skuldir óreiðumanna en hins vegar
væri sparifé landsmanna alveg tryggt upp í topp!!!   Sú gleði entist þó
varla til morguns því breskir ráðherrar skelltu hurðum og fjárhirslum
Kaupþings og Landsbanka á fingralanga bankaeigendurna og einhverjum anga af
hryðjuverkalögum á landið.    Eftir að bresku ráðherrarnir hafa tekið okkar
ráðherra, þá Geir H. og Árna í starfsþjálfun er nú svo komið að þeir skrifa
undir allt sem að þeim er rétt og samþykkja að allt verði greitt upp í topp.
Til þess þarf þó peninga en af þeim er mun meira til í útlöndum en hér og
því hafa menn gengið þar um með betlistafinn, en höfðu framan af ekki erindi
sem erfiði.     Þó kom að því að Davíð opnaði munninn aftur og sagði frá að
sér hefði tekist að kreista út lánsloforð frá Rússum, þeir höfðu meira að
segja  hringt í hann sjálfir klukkan 6 að morgni!        Því miður entist
lánsloforðið ekki nema fram undir hádegið því þá kom í ljós að um
misskilning var að ræða.        Staðan í þessum IceSave- og Kaupþing-Edge
málum er víst nú þannig að við, íslenska þjóðin, nú eigandi íslensku
bankanna skuldum sparifjáreigendum í Bretlandi, Hollandi, Belgíu, Þýskalandi
og e.t.v. víðar heil reiðinnar ósköp af peningum, ég ætla ekki að reyna að
nefna þá tölu enda er hún óþekkt og langt yfir skilning venjulegs fólks
hafin.      Það góða í málinu er að bankastjórar og bankaráðsmenn segja að
útistandandi kröfur bankanna séu langt, langt yfir þessari óþekktu tölu.
Það dregur þó úr gleðinni að sömu menn segja að mjög erfitt sé að breyta
eignunum í peninga, m.ö.o.  þær séu óseljanlegar!       Við fáum þó ekki að
vita hvaða eignir þetta eru en sennilega eru þetta svona eignir sem Phillip
Green mundi kaupa á 5% af verðgildinu og Davíð kalla ástarbréf!
Það er enn ónefnt að á grunni gömlu bankanna risu nýir, Nýi Glitnir, Nýi
Landsbanki og Nýja Kaupþing allir á nýjum kennitölum og með eignir (þ.e.
skuldir viðskiptamanna) gömlu bankanna.    Skuldir gömlu bankanna urðu hins
vegar eftir hvernig sem það má nú vera því ekki getur ríkið stundað
kennitöluflakk, er það?  Við venjuleg gjaldþrot koma skuldir og eignir til
jöfnunar.

Hruninu hefur mikið verið lýst með orðum úr sjómannamáli aðallega eru
árarnar og brimskaflinn mikilvægir.  ISG og Geir lögðu á það áherslu að
allir réru í sömu átt og samtaka því við værum öll á sama bát.     Jón
Sigurðsson í Seðlabankanum (allan hringinn held ég) nefndi að ekki mætti
hætta að róa og fleygja árunum í miðju ólaginu.      Geir er enn að stýra
bátnum og ISG telur í fyrir ræðarana en hvorugt virðist gera sér grein fyrir
að báturinn er löngu brotlentur og liggur með hliðina opna og laskaða fyrir
ágjöf.       Áhöfnin hefur undanfarnar 8 vikur reynt að fá skipstjórann til
að hætta að stýra en gengur það illa.       Maður verður að vona það besta
en það lítur ekki gæfulega út þegar bæði skipstjóri og stýrimaður trúa því
að þau ein séu hæf og til forystu fallin.

HVAÐ ER TIL RÁÐA?
Það þarf að komast til botns í bankamálunum og ÞAÐ GETUR EKKI GENGIÐ NÓGU FLJÓTT!  BARA STRAX!!!!   Þegar fólk sér að farið er að sópa UNDAN teppunum og spilin eru lögð á
borðið kemst ró á í þjóðfélaginu því þá eygir fólk von um réttlæti.
Eins og segir í Aravísum :      ÞIÐ EIGIÐ AÐ SEGJA MÉR SATT!
Fyrsta verkefni ætti því að vera að afnema bankaleynd með lögum og koma með
öll þessi hringavitleysu-keðjusamsæri upp á borðið!     Það gefst jafnvel
tækifæri til að skoða fjármagnsflutninga gegnum Kaupþing í Luxembourg til
skattaparadísa eins og Jómfrúeyja.  (Það væri ólán okkar ef Sigurði
Einarssyni tækist að kaupa útibúið undan nefinu á Fjármálaeftirlitinu eða er
það planið?!)     Samtímis væri öllum starfsmönnum nýju bankanna alveg frá
bankastjóra til sendils (ef þeir eru til!) sagt upp og ráðið í stöðurnar
nýtt fólk sem ekki hefur starfað í gömlu bönkunum eða a.m.k. ekki sem
yfirmenn  OG ER EKKI Í TENGSLUM VIÐ FJÁRGLÆFRAMENN.   Síðan væri farið í það af krafti að safna upplýsingum um  skuldir og ekki síður eignir á móti þessum skuldum bæði hérlendis og
erlendis.    Þetta væri svo metið og unnið úr af grandvörum og heiðarlegum
mönnum og rakið hvort einhverjar misfellur væru!
Þessu starfi væri vonandi stýrt af nýrri ríkisstjórn, nýjum seðlabankastjóra
(annars er ekki mikil von um framgang málsins!) og nýju ópólitísku
bankaráði.    Eiginlega þyrfti núverandi ríkisstjórn að fara frá strax því
það er augljóst að hún hefur ekki döngun í sér hvorki til að fást við
seðlabankastjóra eða við bankakerfið og það er augljóslega verið að selja út
úr bankakerfinu eignir sem ekki ætti að selja strax og þá alls ekki til sömu
manna og keyrðu þau í þrot.    

RÍKISSTJÓRNIN HEFUR EKKI HREINT MÉL Í POKAHORNINU!

Ríkisstjórn og þing þarf svo að vinna bráðan bug að því að bjarga almenningi
og fyrirtækjum úr skuldaklöfum verðtryggingar, gengisáhættu og Guð má vita
hvað annað þjáir.     Stöðva nauðungarsölur og láta ríkið í þess stað kaupa hluta
húsnæðis.   Festa verðtryggingu og vexti.    Skuldbreyta myntkörfulánum ef
það er til bóta.   Lengja greiðslufresti, fella niður seðilgjöld, fella
niður öll stimpilgjöld og hafa almennt samræmi milli álagningar gjalda og
þess kostnaðar sem til fellur!    Hlusta eftir hvað almenningur og
sveitarfélög segja og biðja um.
Innköllun á öllum fiskikvóta til ríkissins og útleiga á sanngjörnu verði er
sjálfsögð aðferð til að fénýta kvótann í þágu alls amennings og til að borga skuldir.   Þá er frjáls
handfæraveiði innan t.d. 4 sjómílna sjálfsögð til að koma lífi í
sjávarbyggðirnar.     Með kvótasetningu ætti að líta meira til færeyinga!
Biðja Hafró að endurskoða rannsóknarstefnu sína og reyna að samræma hana og
reynslu sjómanna og almennt hafa meira samráð og samvinnu við sjómenn.
Biðja sjómennina sem dæmdir voru í sektir hér en sýknaðir fyrir
Alþjóðadómstólnum afsökunar           og greiða þeim bætur eins og þeim
ber - a.m.k. þegar fer að ára betur og helst áður en þeir fara í gröfina.
Eftir dauðann væri þó betra en ekkert!
Auka mannfrekar framkvæmdir sé þess einhver kostur.
Skera niður allan kostnað til varnarmála annað en það sem landhelgisgæslan
þarf.
Ganga úr Shengen-samstarfinu,    það er ekkert nema tilkostnaðurinn að vera
útvörður í þessu samstarfi.    Fólk er hvort sem er alltaf með skilríki með
sér og hefur nógan tíma í vegabréfaskoðun.
Þegar frá líður má svo fara að skoða hvort gjaldmiðilsskipti og innganga í
ESB eru vænlegir kostir og tíunda þá bæði kosti og galla.     Til dæmis
finnst mér það bráðsnjöll rök frá einhverjum ESB-embættismanni fyrir að
ganga í ESB sé að þá getum við breytt sjávarútvegsstefnunni innan frá .
Alveg geníalt!

Einhvers staðar á blogginu sá ég þeirri hugmynd velt upp að ríkið keypti svo sem 100.000 farmiða tur-retur af Flugleiðum/Iceland Express á umsömdu lágu verði og endurseldi túristum á vægu verði.      Túristarnir myndu svo kaupa mat, þjónustu og vörur af ferðaskrifstofum og skila miklum gjaldeyri í kassann.           Þetta kom reyndar í hug minn af enn öðru tilefni - nefnilega því að talað er mikið um að "nú þurfi að velta við hverjum steini"!    Þá koma mér í hug ferðamannastaðir á hálendinu þar sem hverjum steini hefur verið velt við á stórum svæðum til að til að ger þarfir sínar undir þá.     Þarna er mikilvægt og sennilega mannfrekt verkefni en sennilega ekki svo mjög dýrt að setja upp klósett og laga gangstíga á öllum helstu ferðamannastöðunum (og jafnvel víðar)  fyrir utan að vera löngu tímabært.    Þá væri í leiðinni hægt að laga klósettin við Dettifoss sem verið hafa biluð í 2 ár en ég veit að það mundi gleðja Sigurð G. Tómasson útvarps- og leiðsögumann og finnst mér honum það ekki of gott eftir að þeir vildarvinirnir hann og Guðmundur eru búnir að spá öllum þessum hörmungum í ein 5-7 ár  á Útvarpi Sögu  -    og loksins rætast allt saman!    Smile      

Vafalítið mætti nefna fleira sem gera þyrfti til að skapa atvinnu en mig brestur þor og reyndar hugmyndir líka.       

Kveðja,

Ragnar


Kjarkur!

Ég hef ekki lagt í að virkja bloggið hér ennþá - hornsíli eiga erfitt uppdráttar meðal hákarla og svo eru sumir hér orðljótir í þokkabót.     En ég verð að gera eins og ríkisstjórnin, herða upp hugann leggjast á árarnar og róa inn í brimskaflana og boðaföllin og taka stefnuna lágt, skrifa sjaldan og lítið að láta ekki brjóta á neinu.

Látum þetta duga sem fyrstu skrif héðan úr Skagafirðinum.

Ragnar


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband