Ég samhryggist Mosfellingum

Ég vil hér með samhryggjast Mosfellingum með að hafa fengið einhverja fóðursýkingu í hóp af hrossum sínum og hafa misst marga.  Ég lenti í svipuðu áfalli 1994 þegar ég missti 7 hross vegna eitrunar af völdum heys sem ég gaf sem jólaglaðning.     Skaðinn var mikill en tilfinningalega var það nánast óbærilegt að horfa upp á hrossin kveljast og deyja eitt af öðru og geta ekkert gert.     Ég hef aldrei grátið meira og ég græt með ykkur Mosfellingar.

Mínar bestu kveðjur og óskir um að einhverjum batni.

Ragnar Eiríksson, Sauðárkróki


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband